Islandiae
Skilmálar
Með því að versla á islandiae.com samþykkir kaupandi skilmála þessa.
Almennar upplýsingar
Netverslunin Islandiae er rekin af Lidar ehf. (kt. 481222-1680, VSK-númer 147201, Holtsvegur 53, 210 Garðabær). Allar fyrirspurnir má senda í gegnum sambandssíðuna og við svörum að jafnaði innan 1–2 virkra daga.
Vörur
Islandiae selur ljósmyndaprent og veggspjöld sem Hafsteinn hefur sjálfur ljósmyndað og látið prenta. Allar myndir á vefsíðunni eru höfundarréttarvarin eign ljósmyndarans og ekki má afrita, dreifa, breyta eða nota þær í viðskiptalegum tilgangi án skriflegs leyfis.
Athugið að litir á prentuðum veggspjöldum geta verið örlítið frábrugðnir því sem birtist á tölvu- eða símaskjá, þar sem litabirting er mismunandi eftir skjám og pappír.
Pantanir
Islandiae tekur við pöntun um leið og greiðsla hefur borist. Staðfesting er send í tölvupósti um leið og pöntun hefur verið móttekin. Islandiae áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. ef rangar verðupplýsingar hafa birst, vara er ekki til á lager eða vegna mynda- eða prentvillna. Verði pöntun afturkölluð eftir að greiðsla hefur farið fram er hún endurgreidd að fullu.
Verð
24% virðisaukaskattur er innifalinn í öllum verðum sem birt eru á vefnum. Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur, myndbrengl og gengisbreytingar. Heildarkostnaður, þar með talinn sendingarkostnaður, birtist í körfu áður en pöntun er staðfest.
Greiðslur
Hægt er að greiða með greiðslukorti (Visa/Mastercard) í öruggri greiðslugátt, með millifærslu eða öðrum greiðsluleiðum sem í boði eru við kassa. Öll vinnsla greiðslukortaupplýsinga fer fram í vottuðu og dulkóðuðu umhverfi og Islandiae geymir engin kortanúmer.
Sé greitt með millifærslu fær kaupandi tölvupóst með reikningsnúmeri og kennitölu. Pöntun telst samþykkt þegar millifærslan hefur borist. Hafi greiðsla ekki borist innan þriggja (3) virkra daga telst pöntun ógild. Til að flýta fyrir afgreiðslu má senda kvittun úr heimabanka á [netfang] með pöntunarnúmeri í skýringu.
Afhending og sendingarkostnaður
Innanlands (Ísland)
Afgreiðslutími er að jafnaði 3–7 virkir dagar frá því að pöntun og greiðsla hafa borist. Á álagstímum og í kringum frí getur afgreiðslutími lengst lítillega og er kaupanda þá tilkynnt um það.
- Heimsending á höfuðborgarsvæðinu og um allt land: Sent með Dropp skv verðskrá.
- Fríverslunarmörk: Fríar heimsendingar á pöntunum yfir 20.000 kr.
Erlendis (International shipping)
Islandiae sendir veggspjöld og prent til viðskiptavina um allan heim. Sendingarkostnaður, afhendingartími og mögulegir tollar/aðflutningsgjöld ráðast af áfangalandi og birtast í körfu áður en pöntun er staðfest. Kaupandi ber ábyrgð á öllum tollum, virðisaukaskatti og öðrum gjöldum sem kunna að leggjast á vöruna í móttökulandinu.
Áætlaður afhendingartími erlendis er að jafnaði 5–15 virkir dagar frá sendingardegi, eftir landi og flutningsaðila.
Flutningsaðilar og ábyrgð
Sendingar eru afhentar þriðja aðila (t.d. Dropp, Íslandspósti, DHL, UPS eða sambærilegum aðila) og um afhendingu, ábyrgð og flutning gilda skilmálar viðkomandi flutningsaðila. Islandiae ber enga ábyrgð á töfum, tjóni eða týndum sendingum frá því að varan er afhent flutningsaðila. Ef sending týnist eða skemmist í flutningi skal kaupandi hafa samband sem fyrst á [netfang] og við aðstoðum við að leysa málið gagnvart flutningsaðila.
Skilaréttur og endurgreiðsluréttur
Viðskiptavinir hafa 14 daga skilarétt frá því að vara berst, í samræmi við lög um neytendasamninga nr. 16/2016.
Skilyrði skila:
- Varan sé ónotuð, óskemmd og í upprunalegum umbúðum.
- Kvittun eða sölureikningur fylgi sem sýni hvenær varan var keypt. Kaupandi skal tilkynna ákvörðun sína um að falla frá samningi með ótvíræðri yfirlýsingu innan 14 daga frestsins, t.d. í gegnum sambandssíðuna, eða með því að senda staðlað uppsagnareyðublað sem finna má á vef Neytendastofu (www.neytendastofa.is). Islandiae staðfestir móttöku uppsagnarinnar með kvittun í tölvupósti.
Kostnaður: Kaupandi ber beinan sendingarkostnað við að skila vörunni. Upphaflegur sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur nema kaupandi hafi valið ódýrustu fáanlegu sendingarleið. Endurgreiðsla fer fram eigi síðar en 14 dögum eftir að Islandiae hefur móttekið vöruna í ásættanlegu ástandi, og er lögð inn á sama greiðslumáta og notaður var við kaup.
Vakin er athygli á því að sönnunarbyrði um að réttur til að falla frá samningi sé nýttur í samræmi við ákvæði 19. gr. laga um neytendasamninga nr. 16/2016 hvílir á kaupanda.
Sérprentaðar eða sérsmíðaðar vörur
Vörur sem eru sérprentaðar eða sérframleiddar samkvæmt ósk kaupanda (t.d. sérstær eða sérsniðið prent sem ekki er boðið í venjulegu úrvali) falla ekki undir almennan 14 daga skilarétt, sbr. 1. mgr. 18. gr. laga nr. 16/2016 um neytendasamninga. Slíkar pantanir eru endanlegar.
Gallaðar vörur
Ef vara reynist gölluð eða röng vara er afhent skal kaupandi tilkynna það í gegnum sambandssíðuna innan hæfilegs tíma frá móttöku, og helst senda mynd af gallanum. Kaupanda er þá boðin ný vara, afsláttur eða full endurgreiðsla, að eigin vali. Allur sendingarkostnaður vegna gallaðra vara er á ábyrgð Islandiae. Um gallaða vöru gilda að öðru leyti lög um neytendakaup nr. 48/2003 og lög um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000.
Persónuvernd og trúnaður
Islandiae heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem veittar eru í tengslum við viðskiptin. Persónuupplýsingar eru varðveittar með öruggum hætti og eingöngu notaðar til að vinna úr pöntun, afhenda vöru og, með samþykki kaupanda, til að senda fréttabréf eða markaðsefni. Upplýsingum er aldrei deilt með þriðja aðila nema nauðsynlegt sé vegna afhendingar (t.d. flutningsaðila) eða lög krefjist þess.
Kaupandi skuldbindur sig til að gefa upp réttar persónuupplýsingar við kaup.
Nánari upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga má finna í persónuverndarstefnu Islandiae.
Vefkökur (cookies)
Vefurinn notar vefkökur til að bæta notendaupplifun, greina umferð og halda utan um innkaupakörfu. Með því að nota vefinn samþykkir notandi notkun vefkaka. Hægt er að stýra kökustillingum í vafranum.
Höfundarréttur
Allt efni á islandiae.com — þar á meðal ljósmyndir, hönnun, textar og vörumerki — er höfundarréttarvarin eign Hafsteins Róbertssonar / Islandiae. Ekki má afrita, dreifa, breyta eða nota efni vefsins í viðskiptalegum tilgangi án skriflegs leyfis. Kaup á prentaðri vöru veitir kaupanda eignarrétt á eintakinu sjálfu en ekki endurframleiðslurétt á myndinni.
Breytingar á skilmálum
Islandiae áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum án fyrirvara. Skilmálar sem voru í gildi á kaupdegi gilda um hverja pöntun.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Um hann gilda m.a. lög um neytendasamninga nr. 16/2016, lög um neytendakaup nr. 48/2003 og lög um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000. Rísi mál vegna samningsins skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Samband
Islandiae Holtsvegur 53, 210 Garðabær. Vefur: www.islandiae.com
Skilmálar þessir gilda frá og með 1.1.2026.